Einhversstaðar verða vondir að vera!

28.11.2007 14:16:14 / danny

Hápunktur dagsins......

The one and only pæling........

Er það bara ég sem finnst gos/kristall goslaus og vondur ef maður tekur miðann af sem er í kringum flöskuna???? :$


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 13:44:40 / danny

Jú skot í hnakkann getur verið helvíti vont.... er það ekki annars???

HAHAHAHAHAH mæ god.... ljóskur verða alltaf ljóskur :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 13:30:41 / danny

gjafa hvað???

haha verð að segja ykkur frá minni týpísku reynslu sem ég lenti í um daginn.

ég og eiki bleiki vorum á leiðinni í keflavík og ég ákveð að blikka kallinn nú fallega fyrir nýjum brjóstarhaldara, enda ekki búin að kaupa mér slíkan í meira en ár 8|. og þar sem ég á svo umhyggjusaman kall fórum við í Hagkaup til að fjárfesta í einum slíkum ;) aníhú.... ég finn mér tvo flotta og góða haldara og var meira en lítið undrandi hversu fljót ég var að finna þá, er þannig kjella að ég tek mér tíma í að finna svona dót fyrir þessa aðskotahluti sem eru framan á mér :lol:..bara hvimm hvamm hvúmm og út úr búðinni 8| svo förum við bara að dandalast í keflavík og mála bæinn rauðann. þegar heim er komið um kveldið ákveð ég að fara nú að máta þessa frábæru haldara. sá fyrsti var nú rúmgóður og passaði alveg þrævel og ekkert mál með það. en svo þegar í seinni haldarann er komið fara hlutirnir aðeins að snúast öfugt...jú hann var mjög rúmgóður og passaði mjög vel...en það var eitthvað bogið við það hvernig hann var á hliðinni :$ ég sá að þarna var einhver festing sem átti bara alls ekkert að vera! og þegar ég leysti festinguna þá var ekkert yfir brj... á mér en ég var samt ennþá í haldaranum! hmmm nei nei, var þetta þá bara ekki einhver djöf... brjóstahaldari sem konur nota þegar þær eru að gefa barni brjóst!!!!! halló...hvernig gat þetta farið fram hjá mér  :^) pfiff ég er samt að nota þennan blessaða haldara...er meira að segja í honum núna! og hananú! góðu hliðarnar á þessu er að ég get notað hann eftir nokkur ár þegar ég fer að fjölga mér hihi :haha:  svo sá hann eiki minn þegar hann fann kvittunina að þar stóð: gjafabrjósthaldari  hahahahaha döhhhhh


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 12:28:56 / danny

Nemo til sölu....

Heil og sæl þið sem ennþá eruð til sem lesið bloggið mitt :lol:

Setja inn eina auglýsingu:

Bíllinn minn er til sölu!

er citröen C2, sporttýpan, 1600 vél, 125 hö. er beinskiptur, eyðir um það bil 7 af hundraði. er með loftkælingu, hita í sætum, samlæsingu með fjarstýringu, keyrður 45. 000 árgerð 12/2004, fer næst í skoðun 07/2009. Fylgir smurbók sem alltaf hefur verið farið eftir. Einnig er hann í verkstæðisábyrgð til desember 2007.

nemo


Taka við af láni og 200.000 þús út, meðalafborgun ekki nema 20.þús á mánuði :D fór með hann í svona bílskoðun og var hann metinn á 1.270.00 þannig að ég tel mitt boð vera sanngjarnt ;)

Endilega hafið samband í hg2@hi.is">dhg2@hi.is eða hér í gegnum commentin :haha:

adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 19:14:19 / danny

Úr borginni í sveitina....

Jæja elskurnar, komin smá tími á nýtt blogg, ætla nú reyndar ekki að hafa það langt en segja þó helstu fréttirnar ;) 

Nú er málið orðið þannig að kjellan er flutt aftur í Garðinn, sem er að sjálfsögðu æðislegt, enda mjög gott að búa hérna :D smá breyting að vísu frá því að vera búin að búa í bænum í rúm 3 ár. Þannig að núna er ég bara orðinn fullorðin kona í sambúð mar.... sjá fyrir HEIMILI (takið eftir heimili með stórum stöfum þar sem að ég hef ekki búið með kærasta í íbúð fyrr nema í stúdíóíbúð :haha: ) en vá hvað það er þæginlegt að vera komin í hús með svefnherbergi og góðu eldhúsi þar sem ég get notið eldamennsku minnar í botn (sem er að aukast by the way Marta og Hildur :p )

Svo náttúrlega þegar maður er komin í svona fínt hús að þá fær maður sér fylgihlut með því sem að í okkar tilfelli var lítil kisa sem fékk nafnið Snotra ( alveg eins og í bubba byggir fékk ég að frétta frá 2 ára frænda mínum hehe ) Hún er mjög lítil, var minnst af systkinum sínum, en er ROSALEGA forvitin... má ekki gera neitt án þess að hún komi hlaupandi og athugi hvað ég er að gera og hún verður sko að fá að sjá allt saman :lol:

En jæja, erum ennþá netlaus heima, netið fer að koma fljótlega, á meðan hafið það bara sem allra best ;)

see ya


» 17 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 09:01:08 / danny

Strákar og bílarnir þeirra

 
    
Rauður bíll
Rauður bíll ber þess merki að eigandinn er sterkur og hraustur karlmaður. Hann hefur einnig mikla kynlífsorku

Hvítur
Karlmaður sem ekur hvítum bíl er traustur, einlægur og vill frekar vera í föstu sambandi en að stunda "one-night-stand". Hann er með gott hjarta og er ánægður með lífið

Gulur bíll
Eigandi gul bíls er gáfaður, hugmyndaríkur, skapandi og mjög góður til að fá aðra á sitt band

Grænn bíll

Hr. grænn finnst hann oftast vera heppnasti karlmaðurinn á jörðinni. Hann er bjartsýnismaður og er gjafmildur. Síðast en ekki síst er hann mjög frjór

Blár bíll

Karlmaður sem ekur bláum bíl er týpan sem vill vera í föstu sambandi. Hann er hreinskilinn, skilningsríkur og hugsar um framtíðina

Gulllitaður bíll
Þegar karlmaður þýtur um á gulllituðum bíl er það merki um, að hann vill vera með konu á bæði andlegu og líkamlegu plani. Hr. gulllitaður hefur gott karma

Silfurlitaður bíll

Reglumenn elska silfurlitaða bíla. Svo ef að þú vilt fá reglu í líf þitt, skaltu kíkja eftir karlmanni sem ekur silfurlituðum bíl. Fyrir utan það að vera reglumenn eru þeir jákvæðir, jarðbundnir og sjálfsagaðir

Nennti ekki að skrifa nýtt blogg þannig að þetta verður bara að duga :lol:


» 18 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 11:04:18 / danny

Stjörnumerkin og ljósaperur :o)

Lesið þetta og hugsið um fólkið í þessum merkjum um leið. 00

Hvað þarf margar hrúta til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en það þarf margar perur.

Hvað þarf mörg naut til að skipta um ljósaperu?
Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu.

Hvað þarf marga tvíbura til að skipta um ljósaperu?
Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að ljósaperan er miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds lit hvers og eins sem kemur inní herbergið.

Hversu marga krabba þarf til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir atburðinn.

Hversu mörg ljón þarf til að skipta um ljósaperu?
Ljón skipta ekki um perur, í mesta lægi heldur hann henni á meðan heimurinn snýst í kringum hann.

Hversu margar meyjur þarf til að skipta um ljósaperu?
Sjáum nú til: eina til að undirbúa peruna, aðra til að skrifa niður hvenær ljósaperan sprakk og hvenær hún var keypt, aðra til að ákveða hverjum er um að kenna að peran sprakk, tíu til að þrífa húsið á meðan hinir skipta um peruna.

Hversu margar vogir þarf til að skipta um ljósaperu?
Í raun veit ég það ekki.. það fer soldið eftir hvenær peran hætti að virka. Kannski nægir einn ef þetta er bara venjuleg ljósapera, tvo ef hann veit ekki hvar á að kaupa nýja. Og hver væri nú besta peran? Mikið af pælingum og áhyggjum yfir því.

Hversu marga sporðdreka þarf til að skipta um ljósaperu?
Og hver veit það? Afhverju viljiði vita það? Eruði kannski lögreglumenn?

Hversu marga bogamenn þarf til að skipta um ljósaperu?
Sólin skín, það er gott veður, allt lífið framundan og þið hafið áhyggjur af einhverri ljósaperu???

Hversu margar steingeitar þarf til að skipta um ljósaperu?
Enga. Steingeitur skipta ekki um ljósaperur því eftir góðar og athyglisverðar samræður mun ljósaperan skilja að það er miklu skynsamlegra að hún skipti um sig sjálf.

Hversu marga vatnsbera þarf til að skipta um ljósaperu?
Það koma helling af vatnsberum í keppni um hver þeirra er sá eini sem getur gefið heiminum ljós aftur.

Hversu margar fiska þarf til að skipta um ljósaperu?
Afhverju, fór ljósið?

hehe...bara snilld.....ég er steingeit og það er alveg satt, ég bíð alltaf eftir þvi að hún geri það á eigin spýtur :haha::haha::haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 17:48:40 / danny

Hin hliðin á stjörnumerkjunum :o)

 Varð að setja þetta inná :haha:
Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.
Híhí.  000

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 19:07:22 / danny

Smá þriðjudagshúmor :o)

 

A mother passing by her daughter's bedroom was astonished to see the bed was nicely made and everything was picked up. Then she saw an envelope propped up prominently on the center of the bed. It was addressed, "Mom." With the worst premonition, she opened the envelope and read the letter with trembling hands:

Dear Mom: It is with great regret and sorrow that I'm writing you. I had to elope with my new boyfriend because I wanted to avoid a scene with Dad and you. I've been finding real passion with Ahmed and he is so nice-even with all his piercings, tattoos, beard, and his motorcycle clothes. But it's not only the passion Mom, I'm pregnant and Ahmed said that we will be very happy. He already owns a trailer in the woods and has a stack of firewood for the whole winter. He wants to have many more children with me and that's now one of my dreams too. Ahmed taught me that marijuana doesn't really hurt anyone and we'll be growing it for us and trading it with his friends for all the cocaine and ecstasy we want. In the meantime, we'll pray that science will find a cure for AIDS so Ahmed can get better; he sure deserves it!! Don't worry Mom, I'm 15 years old now and I know how to take care of myself. Someday I'm sure we'll be back to visit so you can get to know your grand children.

Your daughter, Judith

PS: Mom, none of the above is true. I'm over at the neighbor's house. I just wanted to remind you that there are worse things in life than my report card that's in my desk center drawer. I love you! Call when it is safe for me to come home.

 

hahahaha bara snilld! :haha:

má samt ekki taka þessu of persónulega fyrir þau sem eru of viðkvæm fyrir svona húmor ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 13:52:42 / danny

Sjúbb sjúbb sjúbb.....njeee kannski ekki fyrir mig

hey hó

hvað segja svo bændur eftir smá langa pásu? :p

Hér kemur svo loksins nýja færslan mín sem var eiginlega orðin long over due skom :$ 

Ég og Eiki bleiki loksins búin að koma okkur vel fyrir í RISA stóru íbúðinni, allt dót komið á sinn stað og allt skipulagt og fínt. Verst með það samt að íbúðin stækkar ekkert, hún bara minnkar með vikunum, sérstaklega þar sem ég er orðin huge fan af IKEA! er svoooo gaman að versla þar  allskyns dóterí,  enda hlýtur íbúðin að fara að fá sér blaðsíðu í IKEA bæklingnum :haha:

og það besta við það er að ég á svo æðislegan kærasta að hann er alltaf tilbúin í að kaupa það nákvæmlega sama og ég vil :lol:  luv u Eiki minn

En fréttir af mér gerast eiginlega ekki....ég er eins og glæstar vonir, þótt þú missir af nokkrum dögum, jafnvel vikum þá missiru ekki af neinu :lol:

svo erum við að fara í "sumar"bústað yfir páskana og ætlum að chilla þar nokkrir vinir saman og slaka á svona áður en próftörnin byrjar og stressið nær yfirtökum á manni. ætlum að taka actionary með og þá verður sko stuðið byrjar af alvöru! eins og flestir muna að þá er ég ógeðslega klár í spilinu með mína leikrænu hæfileika *fliss*

svo verð ég nú að deila því með ykkur að hún marta mín er víst orðin alveg húmöngus fan af akureyri...segir það vera útaf snjónum svo hún geti farið á skíði en við vitum betur hver er raun ástæðan...þó hún eigi eftir að þverneita fyrir því. hihi á þig marta mín. En hún er einmitt að fara næstu helgi keyrandi norður með nýju skíðin sín og gerðist svo frökk að spurja hvort að ég væri til í að fara með sér..... hahahahaha ég á skíðum...það er eitthvað sem að ég hef enga hæfileika í. fór einu sinni til akureyrar á skíði og ég sver það, barnabrekkan er sko engin barnabrekka þar!!!! var komin á svo mikinn hraða að ég henti mér á rassinn svo að ég gæti stoppað! 8|  sú reynsla gleymist seint sko og ég ætla mér sko ekki að fara að endurlifa hana.

og sóley...ef þú ert að lesa þetta þá vil ég bara segja að ég sakna spilakvöldanna okkar mar! Eiríkur kann sko ekki okkar reglur í spilum og það er sko ekkert gaman að spila við hann!  :o

En lengri verður færlsan ekki...því miður fyrir ykkur elskurnar :p hihi

svo að over and out!  


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 14:15:08 / danny

attention attention

Sælar elskurnar, bara að láta vita að myndaalbúmið frá orlando ferðinni er LOKSINS komið inná, ætla ekki að hafa þessa færslu lengri...LOFA að koma með nýja fljótlega ;)

Sæl að sinni

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 12:17:07 / danny

hey hó hey hó

Hvað segiði elskurnar, viljiði fá nýja færslu? :lol: ekkert búin  að vera alltof dugleg við að blogga en þetta er það sem er búið að gerast:
1. jólin, takk æðislega fyrir gjafirnar og æðisleg jól í faðmi ástvina
2. nýtt ár, vúhúú gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla ;)
3. Er flutt í stúdentagarðana með kallinum, vei vei :haha: 36 fm "íbúð" hehe
4. á afmæli 16. jan. víí og vúhú og vei vei allt saman í einum pakka. :D ég er svo mikið afmælisbarn, ELSKA að fá gjafir skiljiði ;) fliss
5. skóli byrjaður aftur, farin að sakna hans smá, en ekkert rosalega :S
6-10. bara þokkalega sátt við lífið eins og það er, bara byrja að taka sig á við að minnka mittismálið :lol: þá verð ég orðin súper sátt hihi.

jæja elskurnar, er eiginlega ekki að nenna að skrifa meira, er að bora í nefið og bíða eftir að kallin komi heim úr vinnu svo við getum farið að gera eitthvað sniðugt....ég sú eina sem datt í hug að versla?? :lol::lol:
ætla að fara að setja á mig smettið svo ég fái ekki yfirlið og læti þegar grámyglufeisið á mér kíkir út í dagsins ljóss :o
Endilega ekki hætta að vera svona æðisleg og munið að það er ekki spurning um að vinna eða tapa, heldur hvernig þið leikið leikinn ;)

» 20 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 21:22:03 / danny

úhú könnun könnun :p

Jæja elskurnar, komið nýtt blogg...eða kannski ekki beint blogg but anyway....

Nú er sko komið að ykkur að gera eina svona netta könnun um mig og ÞAÐ VERÐA SKO ALLIR AÐ SVARA!!! ekkert múður. :lol:                                

Og þeir sem þekkja mig ekki beint mikið fá sko RISA knús ef þeir svara einnig, þannig að nú er sko um að svara :haha:

Endilega have fun og munið hversu frábær þið eruð ;)

1. Nafn þitt?
2. Hvar kynntumst við?
3. Hvað er miðnafnið mitt?
4. Hefurðu hitt mig?
5. Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er?
6. Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
7. Hversu vel þekkiru mig?
8. Reyki ég?
9. Trúi ég á Guð?
10. Hvað Hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
11. Aldur minn?
12. Afmælisdagur?
13. Háralitur?
14. Augnlitur?
15. Á ég systkini?
16. Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
17. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
18. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
19. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
20. Hver er minn besti eiginleiki?
21. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
22. Er ég fyndin/nn?
23. Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
24. Hef ég einhverja sérstaka hæfileika?
25. Spila ég á e-ð hljóðfæri?
26. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það vera?
27. Höfum við kysst?
28. Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni?
29. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
30. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
31. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
32. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
33. Hvaða vin held ég mest uppá?
34. Hef ég hjálpað þér?
35. Hefur þú hjálpað mér?
36. Þykir þér vænt um mig?
37. Er ég sannur vinur?
38. Elskarðu mig?
39. Langar þig að faðma mig?
40. Langar þig að kyssa mig?


» 25 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 19:17:02 / danny

Smá mont :þ


Ætli maður verði nú ekki að setja inn myndir af nýja kallinum og monta sig af honum ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 11:26:26 / danny

Hvað er málið....á stelpan ekkert að blogga hérna???

Hey hó :D
Það er óþarfi að stara.... ég veit, er komin með nýju færslu :lol:
Og ég ætla að tileinka þessari færslu henni Hildi minni sem á afmæli í dag! :D gellan orðin 23. ára gömul bara! og náttúrlega svaka skvísa :lol: Til hamningju með afmælið dúllan mín, luv u :D
    Svo innskot frá mér aðeins um rassinn minn;
Málið er það að í gær var ég ekkert smá dugleg að þrífa íbúðina og taka Nemo alveg í gegn, var alveg allan daginn að þrífa.... og ekkert smá stolt af mér, má ekki gleyma því ;) en svo þegar ég vaknaði í morgun þá er ég bara með þessar æðislegu harðsperrur í rassinum mínum!!! 8| Mikið rosalega er ég í góðu ástandi mar :$ ... fá harðsperrur við það að þrífa, og fá þær á rassinn!!! :lol: Ég er ekki í samræmi við líkama minn hehe
    Og svo er kjellingin bara að fara til Orlando! újééé bara nokkrir dagar, verður bara stuð, náttúrlega aðallega verslunarferð en það er alltaf bara betra :D Going to shop till i drop..
Jæja, veit ekkert hvað ég á að skrifa meira, er tiltörulega nývöknuð og þarf að fara og finna mér eitthvað að éta og gera mig svo tilbúna fyrir afmælispartýið hennar Hildar ;)
Þar til næst, þetta er Daniella Holm sem útvarpar (skrifar) af heimili sínu í náttfötunum  :lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 37353
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012